Á að tryggja öryggi íbúanna

Víða hafa íbúðir verið innréttaðar í atvinnuhúsnæði sem ekki hafa …
Víða hafa íbúðir verið innréttaðar í atvinnuhúsnæði sem ekki hafa fengist samþykktar. mbl/Arnþór Birkisson

Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur samþykkt erindisbréf fyrir starfshóp varðan di verklag og eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Rósa Guðbjartsdóttir er formaður starfshópsins, en auk hennar skipa hópinn fulltrúar frá skipulaginu, byggingarfulltrúum og heilbrigðiseftirliti ásamt fulltrúum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og SHS.

Í erindisbréfi starfshópsins kemur fram að kortlagning á búsetu í atvinnuhúsnæði nái aftur til ársins 2003. Nýleg kortlagning frá 2017 sýni umtalsverða aukningu á slíkri búsetu undanfarin ár og áætla megi að slíkar húseignir séu vel yfir 300.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir í Morgunblaðinu í dag, að ástæða hefði þótt til þess að stofna svona starfshóp, vegna þess að hér væri um viðfangsefni að ræða sem takast yrði á við.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert