Greiðsla til starfsmanna Reykjavíkur í ágúst

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Reykjavíkurborg greiðir starfsfólki með lausa kjarasamninga eingreiðslu 1. ágúst, en þetta var samþykkt í borgarráði í gær sem viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2019. Greiðslan er til komin vegna tafa á viðræðum um nýja kjarasamninga.

Greiðslan er samkvæmt samkomulagi um endurskoðaða viðræðuáætlun sem aðilar komu sér saman um í lok júní um að innágreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019.  Jafnframt gerir endurskoðuð viðræðuáætlun ráð fyrir að samningar liggi fyrir í lok september.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert