Sumarið er gjarnan tími framkvæmda utandyra í borgarlandinu og þá er góðviðri nýtt til þess að lagfæra ýmislegt og viðhalda öðru, til dæmis malbika götur og sinna gróðri.
Af og til reynir á þolinmæði ökumanna sem eiga leið um framkvæmdasvæði borgarinnar.
Það átti við ofarlega á Laugavegi í gær þar sem tvær flugur voru slegnar í einu höggi og unnið að því að hengja upp skilti á hús og gangstéttarhellur lagðar.