Óvenjumikið rennsli í Jökulsá á Fjöllum

Jökulsá á Fjöllum er nánast rauð en hlutfallstala rennslis er …
Jökulsá á Fjöllum er nánast rauð en hlutfallstala rennslis er 92%. Í skýringu segir að um sé að ræða mjög mikið rennsli. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Óvenjumikið rennsli er í Jökulsá á Fjöllum vegna hlýinda á norðanverðu hálendinu undanfarna daga. Vegna vatnavaxta þar hefur veginum um Gæsavatnaleið verið lokað.

Í skýringu á vef Veðurstofunnar, þar sem greint er frá málinu, segir að hlutfallstala rennslis sé 93% og um sé að ræða mjög mikið rennsli.

Fylgjast grannt með stöðunni

Grunur leikur á að jarðhitavatnsleki sé að berast í Múlakvísl en miðað við árstíma er rafleiðni há og vatnsmagn meira en venja er. Ekki er þó talið að hlaup sé hafið enn.

Vaktmenn Veðurstofu Íslands fylgjast grannt með gangi mála.
Vaktmenn Veðurstofu Íslands fylgjast grannt með gangi mála. mbl.is/Jónas Erlendsson

Vaktmenn Veðurstofunnar fylgjast grannt með gangi mála.

Mikið magn vatns hef­ur safn­ast sam­an í sig­kötl­um Mýr­dals­jök­uls und­an­farn­ar vik­ur og mæl­ist raf­leiðni í Múla­kvísl há. 

Bú­ist er við stærsta hlaupi í Múla­kvísl í átta ár, eða síðan 2011 þegar jök­ul­hlaupið tók með sér brúna yfir Múla­kvísl og þjóðveg­ur­inn rofnaði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert