Tvisvar ekið á hjólandi

mbl/Arnþór Birkisson

Tilkynnt var um tvö slys þar sem ekið var á hjólreiðamenn síðdegis í gær. Annars vegar var bifreið ekið á hólreiðamann á gangbraut við Rútstún í Kópavogi á sjötta tímanum í gær. Hjólreiðamaðurinn hafnaði upp á bifreiðinni og kvartaði undan eymslum í höfði, öxl og fótum.

Samkvæmt því sem fram kemur í dagbók lögreglu var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar en ekki er vitað frekar um líðan hans.

Í hinu atvikinu var ekið á hjólandi í Borgartúni rétt rúmlega níu í gærkvöld. Sá var sagður minniháttar meiddur og því þurfti ekki aðstoð sjúkrabifreiðar. Rafmagnshjól mannsins er talið ónýtt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert