Ætla að endurheimta traustið

E. coli faraldurinn mátti rekja til bæjarins Efstadals II í …
E. coli faraldurinn mátti rekja til bæjarins Efstadals II í Bláskógabyggð. mbl.is/Hari

„Okkar áfall er í raun smávægilegt og bliknar í samanburði við það sem lagt er á þá einstaklinga sem veiktust og aðstandendur þeirra,“ segir Sölvi Arnarsson, bóndi og veitingamaður í Efstadal II, í frétt sem birtist í Bændablaðinu.

Sölvi segir áfallið vegna E.coli faraldursins, sem rekja mátti til Efstadals II, hafi verið mikið og reynt á stórfjölskylduna á staðnum.

Hann kveðst þakklátur stórum hópi viðskiptavina sem hefur heimsótt Efstadal í gegnum árin og treyst á gæði vörunnar þar. „Nú tekur við vinna við að endurheimta það traust,“ segir Sölvi.

Níu af þeim tíu börn­um sem sýkt­ust af völd­um E. coli-bakt­erí­unn­ar í fyrstu viku mánaðar­ins smituðust á ferðaþjón­ustu­bæn­um Efsta­dal II, en þau voru á aldr­in­um 1 til 12 ára. Engin tilfelli hafa greinst síðan 18. júlí.

Sölvi segir að fyrst og fremst megi draga þann lærdóm af E.coli faraldrinum að leggja áherslu á mikilvægi handþvottar eftir snertingu við dýr, sér í lagi ef neysla á matvælum er nálægt dýrum.

„Samskiptin við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Matvælastofnun hafa verið mjög góð og gott að leita til þeirra sérfræðinga um aðstoð og höfum við fylgt þeirra leiðbeiningum í einu og öllu,“ segir Sölvi en nánari umfjöllun má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert