Gummi Ben bar þar sem Húrra var

Guðmundur Benediktsson er að opna sportbar í miðbænum.
Guðmundur Benediktsson er að opna sportbar í miðbænum. Ljósmynd/Stöð 2

Guðmundur Benediktsson sjónvarpsmaður og sparkspekingur opnar bar í Naustunum um mánaðamót ágúst og september. Barinn verður þar sem Húrra hefur verið síðustu ár og verður einfaldlega kallaður Gummi Ben bar.

Guðmundur sjálfur staðfestir við mbl.is að áformað sé að opna barinn en gefur ekki meira upp um málið að svo komnu. Áreiðanlegar heimildir mbl.is herma hins vegar að það verði nú um þarnæstu mánaðamót.

Húrra er til húsa í Naustunum. Á götuhorninu er innangengt …
Húrra er til húsa í Naustunum. Á götuhorninu er innangengt á Gaukinn en lengra til vinstri inn á Húrra. Þar opnar Gummi Ben bar. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Húrra lokaði nýlega en hafði verið vinsæll skemmtistaður um árabil. Húsnæðið er í eigu Andrésar Þórs Björnssonar og Ómars Ingimarssonar. Guðmundur vildi ekki gefa upp við mbl.is hver stæði að opnun barsins með honum.

Óræð tilkynning Gumma Ben á Twitter þessa efnis vakti nokkra athygli í gær og viðbrögð eftir því. Geoffrey Huntingdon-Williams, sem var hluti af fyrra rekstrarteymis Húrra, áður en Andrés og Ómar keyptu staðinn, tísti tilvísun í tíst Gumma þar sem hann sagði að um „nýja Húrra“ væri að ræða.

Margir lofuðu framtakið en ánægja annarra var blendin.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert