Regnbogagata á Dalvík

Fólkið á bak við Fiskidaginn mikla á regnbogagötunni.
Fólkið á bak við Fiskidaginn mikla á regnbogagötunni. Ljósmynd/Haukur Snorrason

Regnbogagata hefur verið tekin í gagnið á Dalvík í tilefni þess að hinsegin dagar í Reykjavík verða heiðursgestir Fiskidagsins mikla. Með þessu er sýndur  stuðningur við mannréttindi og margbreytileika. Regnbogagatan nær yfir tvær götur Sunnutún og Martröð sem er meðfram sjónum.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hinsegin dagar í Reykjavík verða heiðursgestir Fiskidagsins mikla 2019. Fulltrúi þeirra sér um vináttukeðjuræðuna 2019 á setningu Fiskidagsins mikla föstudaginn 9. ágúst kl 18, auk þess sem hinsegin tónlistardagskrá verður á sviðinu undir stjórn Regínu Óskar.

Ljósmynd/Haukur Snorrason

Kveðja frá formanni Hinsegin daga í Reykjavík:

„Á Hinsegin dögum 2019 minnumst við þess að 50 ár eru liðin frá Stonewall uppreisninni í Christoper-stræti í New York. Það var aðfaranótt 28. júní sem hinsegin fólk í New York fékk loks nóg af ofsóknum og áreiti lögreglu, snéri vörn í sókn og uppgötvaði samtakamáttinn. Réttindabarátta hinsegin fólks var hafin fyrir alvöru og grunnurinn lagður að pride-hátíðahöldum sem í dag þekkjast víða um heim.

En ekki nóg með það. Í ár fögnum við einnig 20 ára óslitinni sögu hinsegin hátíðahalda í Reykjavík. Það var nefnilega árið 1999 sem Samtökin ʼ78 stóðu fyrir Hinsegin helgi í Reykjavík – einmitt til að minnast þess að þá voru 30 ár frá uppþotunum í Christopher-stræti. Um 1.500 gestir komu saman á Ingólfstorgi laugardaginn 26. júní og strax í kjölfarið var ákveðið að slík hátíðahöld þyrftu að verða að árlegum viðburði hér í borg. Ári síðar, þegar fyrsta gleðigangan var gengin, voru gestirnir tólf þúsund talsins.

Undanfarna tvo áratugi hafa Hinsegin dagar vaxið og dafnað og eru í dag ekki einungis ein fjölsóttasta hátíð landsins heldur einnig líklega alfjölmennasta pride-hátíð í heimi – sé miðað við höfðatölu. Af þessum árangri erum við að sjálfsögðu afar stolt en tökum um leið hlutverk okkar alvarlega og umgöngumst söguna af virðingu – því aðeins með því að vita hvaðan við komum finnum við leiðina þangað sem við ætlum - og við ætlum áfram. Áfram í átt að fullu jafnrétti – lagalegu og samfélagslegu. Við munum halda áfram að ræða, fræða og ögra en við ætlum líka að halda áfram að gleðjast.

Á þessu sannkallaða afmælisári er því mikið fagnaðarefni að skipuleggjendur Fiskidagsins mikla hafi kosið að gera Hinsegin dögum og hinsegin málefnum hátt undir höfði og staðfesta þannig stuðning sinn við mannréttindi og margbreytileika mannlífsins. Við þökkum þann heiður sem okkur er sýndur og vonum að Dalvík, sem og landið allt, skarti sínum skærustu regnbogalitunum í ágústmánuði.

Gleðilega hátíð! Gunnlaugur Bragi Björnsson formaður Hinsegin daga í Reykjavík.“

Frá vinstri: Símon Ellertsson, Jón Arnar Sverrisson, Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri …
Frá vinstri: Símon Ellertsson, Jón Arnar Sverrisson, Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, Telma Ýr Óskarsdóttir og Hulda Karen Pétursdóttir. Ljósmynd/Haukur Snorrason
Ljósmynd/Haukur Snorrason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert