87% segja loftslagsbreytingar af mannavöldum

87% Íslendinga eru sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum.
87% Íslendinga eru sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum. AFP

Mikill meirihluti landsmanna telur loftslagsbreytingar af mannavöldum vera staðreynd. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Zenter gerði fyrir Fréttablaðið. Segjast 87% vera mjög eða frekar sammála þessari fullyrðingu. 8% taka ekki afstöðu og 5% eru því frekar eða mjög ósammála að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd.

Talsverður munur er á afstöðu svarenda eftir því hvaða stjórnmálaflokka þeir styðja. Þannig segja 97-99% þeirra svarenda sem kjósa Samfylkinguna, Vinstri grænna og Pírata loftslagsbreytingar af mannavöldum vera staðreynd.

Stuðningsmenn Miðflokksins og Flokks fólksins lýsa hins vegar mestum efasemdum um loftslagsbreytingar af mannavöldum. Segjast 26% stuðningsmanna Miðflokksins annars vegar og 28% stuðningsmanna Flokks fólksins hins vegar vera ósammála því að svo sé.  Fáir í öðrum flokkum lýsa yfir sömu skoðun, eða mest 4% meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. 

Þeir sem yngri eru eru líklegri til að segja loftslagsbreytingar af mannavöldum vera staðreynd heldur en þeir sem eldri eru. Í aldurshópnum 18-24 ára eru 83% mjög sammála fullyrðingunni. Í elsta aldursflokkinum, hjá 65 ára og eldri, er 41% sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum en 30% eru því ósammála.

Zenter gerði könnunina fyrir Fréttablaðið með því að senda spurningalista á 2.000 manna könnunarhóp. Svarhlutfall var 51% og voru svörin vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert