Aðgengi takmarkað að náttúruperlum í Mývatnssveit

Landverðir bregðast við ágangi ferðamanna.
Landverðir bregðast við ágangi ferðamanna. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að bregðast við álagi á þremur viðkvæmum náttúruperlum í Mývatnssveit með aðgerðum sem leiða munu til betri stýringar umferðar fólks um svæðin en verið hefur. Hefur þegar verið hafist handa um það.

Svæðin eru Hverir, Leirhnjúkur og Stóra-Víti, öll í landi Reykjahlíðar. Landeigandi í Reykjahlíð óskaði eftir því að Umhverfisstofnun takmarkaði aðgengi ferðamanna að svæðunum, að því er segir í tilkynningu.

„Þegar stofnunin auglýsti eftir athugasemdum komu fram skiptar skoðanir meðal landeigenda sem og annarra umsagnaraðila um ástand svæðisins og aðgerðir. Í ljósi verndargildis svæðanna telur Umhverfisstofnun rétt að bregðast við með því að loka hringleið umverfis Stóra-Víti. Til fleiri ráðstafana verður gripið s.s. með því að fjölga göngustikum á öllum svæðunum þremur, skerpa með því á leyfilegum gönguleiðum og setja upp skilti sem banna ferðafólki umferð utan þeirra,“ segir í tilkynningunni. Fimm landverðir munu vinna að því að vernda svæðið með þessum hætti næstu daga. Auk þess mun daglegt eftirlit næstu vikur fara fram til að fylgja því eftir að reglur verði virtar.

„Við höfum ekki áður farið þessa leið en með þessum skrefum vonumst við til að ná sama árangri og ef svæðinu hefði verið lokað fyrir umferð ferðafólks,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, staðgengill forstjóra Umhverfisstofnunar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert