Hátíðarhöldum lýkur með Sparitónleikum

Fjölmenni fylgdist með dagskránni á Ráðhústorginu í gær.
Fjölmenni fylgdist með dagskránni á Ráðhústorginu í gær. mbl.is/Þorgeir

„Það er mjög margt fólk í bænum,“ segir vakthafandi lögreglumaður hjá lögreglunni á Akureyri í samtali við mbl.is. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefur farið fram í bænum nú um verslunarmannahelgina líkt og undanfarin ár og var stemningin góð líkt og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Talsverður erill var hjá lögreglu í nótt og fengu þrír að gista í fangaklefa vegna tveggja aðskildra lík­ams­árás­ar­mála. Að sögn lögreglu hafa hátíðarhöldin að öðru leyti gengið vel fyrir sig og eru tjaldsvæðin á Akureyri og í nágrenni nokkuð full.

Fjölmenni gerði sér ferð í Lystigarðinn til að gæða sér …
Fjölmenni gerði sér ferð í Lystigarðinn til að gæða sér á litríkum möffins. mbl.is/Þorgeir

Met var þá slegið í Lystigarðinum í gær þegar á þriðjaþúsund möffins seldust á tveimur tímum á möffinsbasarnum Mömmur og möffins.

„Það safnaðist rúm millj­ón á þess­um tveim­ur tím­um,“ seg­ir Val­dís Anna Jóns­dótt­ir sem er í for­svari fyr­ir Mömm­ur og möff­ins í samtali viðmbl.is í gær. Ágóðinn af möff­ins­söl­unni fer í að styrkja fæðing­ar­deild sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri. 

Tjaldstæðið á Hömrunum, líkt og önnur tjaldstæði á Akureyri og …
Tjaldstæðið á Hömrunum, líkt og önnur tjaldstæði á Akureyri og í næsta nágrenni voru nokkuð full. mbl.is/Þorgeir

Einni með öllu lýkur svo með sparitónleikum í kvöld á samkomutúninu við Drottningarbraut, en meðal þeirra sem þar koma fram eru Gréta Salóme, Jónas Sig, Friðrik Dór og Herra Hnetusmjör.

mbl.is/Þorgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert