Tveir með sjúkraflugi frá Eyjum

Þjóðhátíð í Eyjum. Mynd úr safni.
Þjóðhátíð í Eyjum. Mynd úr safni. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Flytja þurfti tvo þolendur líkamsárása með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum í nótt vegna áverka sem þeir fengu. Þrír menn eru í haldi vegnar rannsóknar á málunum. Þetta segir lögreglan í Vestmannaeyjum á Facebook.

Þá komu tíu fíkniefnamál upp í gærkvöldi og nótt og voru þau öll svokölluð neyslumál, utan eins þar sem grunur er um sölu. Í gær höfðu komið upp 12 mál frá því á fimmtudag svo líklega eru þau að minnsta kosti 22 í heildina.

Alls voru líkamsárásirnar fjórar, eins og fram kom á mbl.is í morgun, en tvær þeirra voru minniháttar. Mikil ölvun var í Heimaey og hafði lögregla nóg að gera langt framundir morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert