Nóttin var róleg á Akureyri

Frá göngugötunni á Akureyri í gær.
Frá göngugötunni á Akureyri í gær. mbl.is/Þorgeir

Nóttin var róleg hjá lögreglunni á Akureyri, þar sem fjölskylduhátíðin Ein með öllu kláraðist í gærkvöldi. Einn gisti þó fangageymslur vegna ölvunar. Helgin gekk heilt yfir vel.

Mjög margt fólk var í bænum, tjaldsvæðin þétt setin og lauk formlegum hátíðarhöldum með Sparitónleikum á samkomutúninu við Drottningarbraut.

Samkvæmt samtali við lögreglu var einn ökumaður tekinn í morgunsárið, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögregla ætlar að fylgjast vel með umferðinni út úr bænum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert