Árni Björn og Flaumur efstir eftir forkeppni

Fjórgangur var fyrsti liður í íþróttakeppni heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem …
Fjórgangur var fyrsti liður í íþróttakeppni heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem nú fer fram í Berlín. Ljósmynd/Aðsend

Íslendingar tefldu fram fjórum knöpum í flokki fullorðinna og tveimur í ungmennaflokki í forkeppni í fjórgangi sem fram fór á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín í dag.

Fjórgangurinn var fyrsti liður í íþróttakeppni heimsmeistaramótsins. Efstur eftir forkeppnina er Árni Björn Pálsson og Flaumur frá Sólvangi með 7,67 í einkunn, annar er Jóhann Skúlason á Finnboga frá Minni-Reykjum með 7,43. Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá Strandarhöfði enduðu sjöttu og eru þar með efstir inn í b-úrslit sem fara fram á laugardag.

Máni Hilmarsson og Lísbet frá Borgarnesi áttu hins vegar ekki sinn besta dag og náðu ekki í úrslit. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Koltinna frá Varmalæk eru í öðru sæti í flokki ungmenna og Hákon Dan Ólafsson og Stirnir frá Skirðu eru fjórðu inn í úrslit. Öll a-úrslit fara fram á sunnudag.

Reiðdómur fimm vetra hrossa fór þá fram á kynbótabrautinni í dag. Fulltrúar Íslands í flokki fimm vetra hrossa eru þau Hamur frá Hólabaki og Mjallhvít frá Þverholtum. Fram kemur í tilkynningu frá Landssambandi hestamanna að  öll kynbótahross hafi lækkað í dómi í dag og voru íslensku hrossin tvö engin undantekning. Eftir daginn standa þau þó bæði önnur í sínum flokki skammt á eftir efstu hrossum.

Yfirlitssýning kynbótahrossa fer fram á fimmtudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert