SGS samþykkir að höfða mál fyrir Félagsdómi

Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands hefur ákveðið að sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Þar segir, að SGS harmi þá afstöðu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, að neita að ganga til kjarasamningsviðræðna um hvernig ná megi fram jöfnuði milli almenna og opinbera lífeyriskerfisins, sérstaklega hvað félagsmenn aðildarfélaga SGS og almennt verkafólk í þjónustu sveitarfélaganna varði, líkt og samið hafi verið um í kjarasamningum 7. júlí 2009.

„Nú þegar hefur stærsta sveitarfélag landsins ákveðið að efna samkomulag aðila fyrir sitt leiti [sic] en önnur þverskallast við og neita einfaldlega að ganga til viðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna sinna á þeirri forsendu að þau hafi aldrei undirgengist slíka skyldu. SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þessari óefndu jöfnun í öllum forsendum og útreikningum aðila eftir 2009.

Formannafundur SGS samþykkir því [að] sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert