Tvenn gullverðlaun í gæðingaskeiði

Ljósmynd/Aðsend

Íslendingar unnu tvenn gullverðlaun í gæðingaskeiði á HM í hestaíþróttum í Berlín í dag.

Aðeins 0,03 í einkunn skyldi að Teit Árnason og Dynfara frá Steinnesi og Magnús Skúlason og Völsu frá Brösarpsgården sem keppa fyrir Svíþjóð og höfðu Teitur og Dynfari vinninginn með einkunnina 8,66.

Í þriðja sæti urðu Bergþór Eggertsson og Besti frá Upphafi. Benjamín Sandur Ingólfsson og Messa frá Káragerði urðu svo heimsmeistarar í gæðingaskeiði í flokki ungmenna.

Ljósmynd/Aðsend

Glódís Rún Sigurðardóttir og Trausti frá Þóroddsstöðum kepptu einnig í flokki ungmenna en ekki tókst sem skyldi. Glódís Rún hefur þar með lokið keppni á heimsmeistaramótinu.

Yfirlitssýningum kynbótahrossa er nú lokið og eiga Íslendingar efstu hross í fjórum flokkum af sex.

Íslensku hryssurnar þrjá unnu allar sína flokka, Mjallhvít frá Þverholtum varð efst í flokki fimm vetra hryssna með aðaleinkunn 8,14. Knapi á Mjallhvíti er Þórður Þorgeirsson. Eyrún Ýr varð efst í flokki sex vetra hryssna með aðaleinkunn 8,58. Knapi á Eyrúnu Ýr er Eyrún Ýr Pálsdóttir. Elja frá Sauðholtum varð efst í flokki sjö vetra hryssna með aðaleinkunn 8,76.

Ljósmynd/Aðsend

Spaði frá Barkarstöðum varð efstur í flokki 6 vetra hesta með aðaleinkunn 8,61. Knapi á Spaða er Helga Una Björnsdóttir. Hamur frá Hólabaki endaði annar í flokki fimm vetra stóðhesta með 8,44 í aðaleinkunn, knapi á Ham er Tryggvi Björnsson. Nói frá Stóra-Hofi var fulltrúi Íslands í flokki sjö vetra stóðhesta en hann heltist og fór því ekki í dóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert