Umferðarslys í Eldhrauni

Suðurlandsvegur í Eldhrauni, Skaftárhreppi, vestan Kirkjubæjarklausturs er lokaður um óákveðinn tíma vegna umferðarslyss. 

Ökumönnum er bent á hjáleið um Meðalland.

Frekari upplýsingar er ekki hægt að veita að sinni, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Uppfært kl. 20.54:

Að sögn Landhelgisgæslunnar er þyrlan TF-LIF á leiðinni á vettvang.

Uppfært kl. 21:25:

Um var að ræða bílveltu og voru fjórir í bílnum. Þyrlan er búin að sækja þann eða þá sem slösuðust og er á leiðinni á Landspítalann.

Opnað verður fyrir umferð um veginn innan skamms, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.

Uppfært kl. 21.32:

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að Suðurlandsvegur hafi verið opnaður að nýju fyrir allri umferð.

Vettvangsvinnu lögreglunnar er lokið.

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert