Gróðureldar á Nesjavallaleið

Frá slökkvistörfum í dag.
Frá slökkvistörfum í dag. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út fyrir hádegi í dag vegna gróðurelda á Nesjavallaleið. Ekki var um stórt svæði að ræða en eldurinn var í mosa.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu brunavarna Árnessýslu.

Þar segir einnig að eldur í mosa geti mallað í nokkurn tíma áður en hann tekur sig upp og því geti reynst snúið að tryggja að ekki leynist glóð eða eldur í honum áður en vettvangur er yfirgefinn.

„Það eru kjöraðstæður fyrir gróðurbruna í dag, gróður og jarðvegur er töluvert þurr og þarf því ekki mikið til að kveikja eld í honum. Glóð frá sígarettu getur verið nægjanleg til að kveikja eld og þegar vindur er eins og hann hefur verið síðustu daga getur eldurinn breiðst hratt út.“

Almenningur er hvattur til að fara varðlega með eld og aðra hitagjafa nálægt gróðri og beðinn um að hafa augun opin. Fræðslu er svo að finna á síðunni grodureldar.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert