96% þegar komnir með starfsnámsstöðu

Starfsnámið er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga …
Starfsnámið er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum. Mynd úr safni. mbl.is/​Hari

Mjög vel gengur að finna starfsnámstöður fyrir kennaranema og hafa 96% þeirra sem eftir því sækjast þegar fengið slíka stöðu. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Launað starfsnám sem nú býðst nemendum á lokaári í meistaranámi til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum.

„Við höfum fengið virkilega jákvæð viðbrögð við aðgerðunum sem miða að fjölgun kennara, frá skólasamfélaginu, sveitarfélögunum, kennaraforystunni og foreldrum. Aðgerðirnar voru unnar í góðu samráði og samvinna okkar er farin að skila góðum árangri að mínu mati. Það er okkur kappsmál að stuðla að öflugu skólastarfi og styrku menntakerfi – þar leika kennarar aðalhlutverkið,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í fréttinni.

Í starfsnámi starfa kennaranemarnir við hlið reyndra kennara yfir heilt skólaár. Sinna nemarnir daglegum störfum í skólunum og kynna sér fjölbreyttar kennsluaðferðir og starfshætti á þeim námssviðum eða námsgreinum sem þeir ætla að sérhæfa sig í.

Starfsnámið þykir þá ekki síður vera mikilvægur liður í þjálfun kennaranemanna og undirbúningi þeirra fyrir frekari störf í skólum að lokinni útskrift.

Umsóknum um kennaranám fjölgaði verulega milli ára sl. vor, alls um rúmlega 200 í háskólunum fjórum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert