Már til starfa í Malasíu

Már Guðmundsson, fráfarandi seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, fráfarandi seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verið er að ganga frá samningum um tímabundna ráðningu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra til samtaka seðlabanka Suð-Austur Asíu (SEACEN).

Frá þessu er greint á fréttavef Fréttablaðsins. Þar segir að Már, sem lætur af embætti í næstu viku eftir að hafa stýrt Seðlabanka Íslands undanfarin tíu ár, hafi samkvæmt heimildum blaðsins greint frá þessu í kveðjuhófi í bankanum í gær.

þar segir enn fremur að nýtt starf Más muni snúast um að veita seðlabönkum í Suð-Austur Asíu ráðgjöf einkum við stefnumótun í tengslum við innflæðishöft, eða svokallað fjárstreymistæki, meðal annars í samskiptum þeirra við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Starfsstöð Más verður í Kúala Lúmpur, höfuðborg Malasíu, og er gert ráð fyrir því að hann taki við störfum á fyrri hluta næsta árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert