Ragnhildur nýr sviðsstjóri starfsmannasviðs HÍ

Ragnhildur Ísaksdóttir.
Ragnhildur Ísaksdóttir. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ragnhildur Ísaksdóttir hefur tekið við starfi sviðsstjóra starfsmannasviðs Háskóla Íslands. Hún mun leiða mannauðsmál skólans og vinna náið með rektor og öðrum stjórnendum að því að móta vinnustað í fremstu röð.

Ragnhildur hefur áralanga reynslu af mannauðsmálum og kemur til Háskóla Íslands frá Reykjavíkurborg þar sem hún var starfsmannastjóri. Hún hefur lokið meistaraprófi í mannauðsstjórnun, diplómaprófi í opinberri stjórnsýslu og BA-prófi í stjórnmálafræði, öllum frá Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert