Vill undanþágu frá orkupakkanum

mbl.is/Styrmir Kári

Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var í gær vegna umræðunnar um þriðja orkupakka Evrópusambandsins þar sem áréttað er að orkuauðlindin sé ein af mikilvægustu forsendum velmegunar í landinu.

„Mikilvægi þess að allar ákvarðanir í orkumálum verði í höndum Íslendinga er því ótvírætt. Skal í því sambandi minnt á að stjórnarskrá Íslands leyfir ekki framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Aðstæður Íslands í orkumálum eru gjörólíkar þeim sem liggja til grundvallar orkulöggjöf ESB og því er óskynsamlegt að innleiða það regluverk hér. Ísland hefur í dag enga tengingu við orkumarkað ESB og telur stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar slíka tengingu ekki þjóna hagsmunum landsmanna. Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar telur því rétt að Alþingi og ríkisstjórn skuli leita eftir undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans,“ segir enn fremur í ályktuninni.

Ályktunin er efnislega samhljóða stjórnmálaályktun haustfundar miðstjórnar Framsóknarflokksins síðasta haust um þriðja orkupakka Evrópusambandsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert