Katrín fundaði með Mary Robinson

Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Mary …
Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands, sem einnig hefur verið erindreki Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttindamála og baráttukona fyrir loftslagsréttlæti. 

Þær ræddu um stöðuna í loftslagsmálum og þá brýnu nauðsyn að ríki heims taki höndum saman um aðgerðir til að stöðva þá uggvænlegu þróun sem stefnir í ef ekki tekst að ná tökum á hlýnun jarðar, að því er forsætisráðuneytið greinir frá.

Mary afhenti forsætisráðherra bréf frá yfir tuttugu alþjóðlegum leiðtogum úr viðskiptum, verkalýðshreyfingu og þriðja geiranum því til stuðnings að Norðurlöndin taki aukið forystuhlutverk í baráttunni við hamfarahlýnun og lýsi yfir neyðarástandi, en loftslagsmál eru eitt af aðalefnum fundarins að frumkvæði Íslands, sem fer nú með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni, segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert