Ekki taldar líkur á að margir laxar hafi sloppið í Tálknafjörð

Sjókvíar. Gatið á netapokanum hjá Arnarlaxi var 7x12 cm að …
Sjókvíar. Gatið á netapokanum hjá Arnarlaxi var 7x12 cm að stærð.

Ekki eru taldar líkur á að margir laxar hafi sloppið út um gat sem kom á nótapoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálknafirði. Gatið var lítið og enginn fiskur veiddist við kvína eftir að skemmdin uppgötvaðist.

Starfsmaður Fiskistofu segir þó ekki hægt að útiloka að einhver lax hafi sloppið. Fiskistofa sinnir málefnum sem varða slysasleppingar á eldisfiski.

Ef óhöpp verða í fiskeldi og fiskur sleppur ber rekstarleyfishöfum að tilkynna það tafarlaust. Arnarlax tilkynnti þegar gat á kvínni kom í ljós þótt engin merki sæust um að fiskur hefði sloppið. Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, segir að net hafi verið við kvína í tvo daga um helgina án þess að nokkur fiskur hafi komið í þau.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert