Engar „reglur“ heimili launaþjófnað

Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands. mbl.is/Valli

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) áréttar það og segir það af gefnu tilefni, að laun samkvæmt kjarasamningum hér á landi eru lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði. Engar reglur heimili launaþjófnað.

ASÍ finnur sig knúið til þess að halda þessu til haga, þar sem sambandið segir því „ítrekað“ haldið fram að „erlent launafólk sem kemur til starfa hér á landi eigi að þurfa, a.m.k. tímabundið, að sætta sig við önnur og lakari laun og önnur starfskjör en gilda fyrir aðra á íslenskum vinnumarkaði“.

Þessi viðhorf munu hafa komið fram í umfjöllun í fjölmiðlum eftir að skýrsla ASÍ um brotastarfsemi á vinnumarkaði var birt í síðustu viku.

„Í því samhengi er m.a. gjarnan vísað í „10 daga regluna“ eða „183 daga regluna“. Staðreyndin er sú að engar slíkar „reglur“ eru til sem veita atvinnurekendum rétt til að hlunnfara starfsmenn sína, þ.m.t. erlenda rútubílstjóra, fararstjóra og byggingamenn sem starfa tímabundið hér á landi. Sama gildir um sjálfboðaliða og starfsnema sem nýttir eru í efnahagslegri starfsemi,“ segir í yfirlýsingu ASÍ, sem birtist á vef sambandsins í gær.

Laun samkvæmt kjarasamningum eru lágmarkskjör á íslenskum vinnumarkaði, ítrekar sambandið:

„Það gildir einnig um útlendinga sem koma hingað til starfa og það gildir frá fyrsta starfsdegi. Skiptir þá ekki máli hvort þeir starfa fyrir íslensk eða erlendi [sic] fyrirtæki. Þau fyrirtæki sem ekki virða þennan rétt starfsmanna sinna eru brotleg við íslensk lög og stunda launaþjófnað gagnvart starfsmönnum sínum. Slíkt verður aldrei liðið,“ segir ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert