Háþrýstiþvottur ein skýringin á smiti

Matvælastofnun telur að háþrýstiþvottur á umhverfi nautgripa hafi að líkindum verið ein af smitleiðum STEC-smitsins í Efstadal II í fólk. Stofnunin vekur athygli bænda og annarra framleiðenda á því að úði frá háþrýstiþvotti á smituðu umhverfi geti dreift smitefnum og valdið sjúkdómi í dýrum og mönnum.

Níu börn smituðust af E.coli eft­ir heim­sókn í Efsta­dal II í júní og júlí, og annað barn að auki sem smitaðist af systkini sínu. Hafa verið tek­in 66 sýni í Efsta­dal II. 41 þeirra var af mat­væl­um og um­hverfi í ís­gerð og ís­sölu og 25 þeirra úr dýr­um og um­hverfi þeirra.

„Á Íslandi og víðar er hefð fyrir því að nota háþrýstiþvott í landbúnaði. Í úðanum sem myndast við háþrýstiþvott geta verið sveppir, bakteríur, veirur, sníkjudýr eða önnur smitefni sem berast auðveldlega í fólk og dýr, t.d. með því að anda úðanum að sér. Auk þess leggst úðinn á yfirborðsfleti og mengar þá. Smit getur þá orðið við snertingu. Fólk í landbúnaði þarf að gera sér grein fyrir þessu og endurskoða starfsvenjur sínar þannig að komið verði í veg fyrir óþarfa dreifingu smits. Það sama getur átt við í matvælaiðnaði.

Lágþrýstiþvottur (20-22 bör) hefur kosti umfram háþrýstiþvott (um og yfir 100 bör) að því leyti að hvorki myndast úði né dreifast óhreinindi eins mikið, þannig er lágþrýstiþvottur betri kostur til þvotta í landbúnaði. Í landbúnaði eru óhjákvæmilega smitefni og ætíð ætti að gera ráð fyrir að smitefni geti verið hættuleg heilsu manna og dýra. Í öllu falli ætti ekki að nota háþrýstiþvott þar sem nálægð er mikil milli dýra og manna og/eða matvæla, því úðinn fer víða. Aldrei skal þvo gripahús með háþrýstingi þegar dýr eru inni og nota skal grímur til að verjast úðasmiti.

Sýking af völdum sníkjudýrsins Cryptosporidium parvum meðal dýralæknanema í Danmörku árið 2012 er gott dæmi um hvað getur gerst við háþrýstiþvott í smituðu umhverfi. Við frágang eftir verklega kennslu með kálfa sem voru með niðurgang var kennslurýmið háþrýstiþvegið. Allir sem þar voru inni veiktust, alls 24 manns. Smitið barst að öllum líkindum með úðanum sem myndaðist við þvottinn, sem viðstaddir önduðu að sér.

Matvælastofnun hvetur bændur og þá sem eru ábyrgir fyrir matvælaöryggi til að skoða þrifa- og sótthreinsiaðferðir sem viðhafðar eru og leita ráða um tæki og efni sem í boði eru á markaðnum og henta vel til notkunar í landbúnaði og við meðferð matvæla,“ segir á vef Matvælastofnunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert