3,1% atvinnuleysi í júlí

Atvinnuleysi í júlí mældist 3,1%, samanborið við 3,3% í júní.
Atvinnuleysi í júlí mældist 3,1%, samanborið við 3,3% í júní. mbl.is/Golli

3,1% atvinnuleysi var í júlí, samkvæmt árstíðaleiðréttingu Hagstofu Íslands. Litlar breytingar voru á milli mánaða og var árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 81,2%, sem er rétt um 0,2 prósentustigum lægra en í júní.

Af vinnuaflinu reyndust 208.400 vera starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,5%. 

Samanburður mælinga fyrir júlí 2018 og 2019 sýnir að í vinnuafli fjölgaði um 3.000 manns, en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,7 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 2.700 og hlutfallið var einnig 0,7 prósentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018.

Atvinnulausir í júlí 2019 voru um 200 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 5.200. Hlutfall atvinnlausra var þó það sama eða 2,5%. Alls voru 42.500 utan vinnumarkaðar í júlí 2019 en höfðu verið 39.800 í júlí 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert