Tafir á Vesturlandsvegi til kl. 18

Undanfarna daga hafa staðið yfir malbikunarframkvæmdir á Vesturlandsvegi. Við það hægist töluvert á umferð inn í borgina en áætlað er að framkvæmdum í dag ljúki kl. 18. Verið er að fræsa og malbika aðra akreinina frá hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg og áleiðis að hringtorgi við Lambhagaveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert