Ágætishaustlægð á leiðinni

Rok og rigning segir spáin fyrir sunnudag og mánudag.
Rok og rigning segir spáin fyrir sunnudag og mánudag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Dálitlar skúrir, en bjartara yfir og þurrt að kalla fyrir norðan. Milt í veðri, hiti allt að 18 stig á Suðausturlandi á morgun.

Útlit er fyrir að ágætishaustlægð gangi yfir landið á sunnudag og mánudag með suðaustanátt og rigningu. Gera má ráð fyrir allhvössum vindi, jafnvel hvassviðri fyrir hádegi á sunnudag sunnan- og suðvestanlands. Þessu veðri fylgir rigning í öllum landshlutum og talsverð á Suður- og Suðausturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Í dag verður fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu, en bjartara yfir á Norðurlandi. Dálitlar skúrir á morgun, en þurrt að kalla norðaustan til. Hægviðri á morgun, skýjað með köflum og skúrir Vestan og norðvestanlands, annars þurrt að kalla. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi á morgun.

Veðurspá fyrir næstu daga

Á laugardag:

Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og skúrir, einkum síðdegis. Norðan 5-10 m/s og dálítil rigning austast á landinu. Hiti 10 til 16 stig. 

Á sunnudag:
Vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s eftir hádegi og rigning, en hægari og þurrt fram á kvöld á Norðurlandi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast fyrir norðan. 

Á mánudag:
Suðvestan 8-15 m/s. Víða rigning og hiti 8 til 12 stig, en úrkomulítið á Norðausturlandi með allt að 17 stiga hita. 

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg átt og rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að kalla og bjart veður norðaustan til. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. 

Á fimmtudag:
Útlit fyrir hæga suðlæga eða austlæga átt, skýjað með köflum og úrkomulítið, en norðaustanstrekking norðvestan til og dálitla rigningu eða súld. Kólnar lítið eitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert