Bíll er alelda á bílastæði við lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík. Slökkviliðið er að störfum að ráða niðurlögum eldsins. Ekki er talin hætta á að eldur berist í nærliggjandi hús og talið er að bíllinn hafi verið mannlaus.
Slökkviliðinu var tilkynnt um eldinn kl. 21:15, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu og gekk fljótt og vel að slökkva eldinn.
Uppfært 22:08: Bifreiðin sem var í einkaeigu er mikið skemmd að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu, sem segir ekki ljóst hvers vegna eldurinn kviknaði en málið sé í rannsókn.