Gert lítið úr þátttöku Katrínar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ávarpa þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS) sem …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ávarpa þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS) sem fer fram í Malmö 3.-5. september. Á sama tíma sækir Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, Ísland heim. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Orðræða sumra í fjölmiðlum síðustu daga vegna ákvörðunar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra að vera ekki viðstödd heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í byrjun næsta mánaðar „segir sitt um viðhorf og firringu þeirra sem henni hafa haldið á lofti,“ segir í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands. 

Er þar vísað í ummæli um að Katrín sé að hunsa komu varaforsetans og gagnrýni ýmissa stjórnmálamanna á fjarveru forsætisráðherrans. „Þar er gert lítið úr mikilvægi þess að forsætisráðherra Íslands ávarpi og eigi samtal, við fulltrúa níu milljóna verkafólks á Norðurlöndunum og samtaka þess, um mörg brýnustu úrlausnarefni samtímans,“ segir í tilkynningu ASÍ. 

Katrín mun ávarpa þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS) sem fer fram í Malmö 3. – 5. september undir yfirskriftinni „Byggjum brýr“. Þingið sækir forystufólk frá 15 heildarsamtökum launafólks frá öllum Norðurlöndunum. Fulltrúar fyrir 9 milljónir launamanna og verkalýðsfélaga sem hafa verið mikilvægasta aflið í að byggja upp velferðarsamfélög Norðurlandanna.

Formaður NFS er Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Sú venja hefur skapast að forsætisráðherra þess lands sem fer með formennsku hverju sinni flytji aðalræðuna á þinginu. Að þessu sinni kemur það því í hlut Katrínar og fram kemur í tilkynningu ASÍ að mikil eftirvænting ríki meðal væntanlegra þingfulltrúa að heyra það sem hún hefur til málanna að leggja.

„Fréttaflutningur síðustu daga og viðhorf ýmissa stjórnmálamanna vegna þátttöku Katrínar Jakobsdóttur á þingi NFS vekur furðu,“  segir jafnframt í tilkynningunni og segir ASÍ að lítið sé gert úr mikilvægi þess að forsætisráðherra Íslands ávarpi og eigi samtal við fulltrúa níu milljóna verkafólks á Norðurlöndunum og samtaka þess, um mörg brýnustu úrlausnarefni samtímans.

Meginviðfangsefni þings NFS að þessu sinni er þróun á vettvangi ESB/EES og norræna kjarasamningamódelið. Þá verður fjallað um þær áskoranir sem lýðræðið og atvinnulíf framtíðarinnar standa frammi fyrir og framtíð verkalýðshreyfingarinnar. Forystufólk úr stjórnmálum, evrópskri verkalýðshreyfingu og sérfræðingar munu leggja sitt af mörkum í umræðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert