Opið hús á Bessastöðum

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á morgun sem liður í Menningarnótt. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu milli klukkan 13 og 16.

Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa sem forseta hafa borist og fornleifar sem veita innsýn í búsetu á Bessastöðum frá landnámstíð, að því er segir í tilkynningu.

Gestir geta skoðað Bessastaðastofu alla sem og móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins. Þá mun fyrsti forsetabíllinn, Packard-bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði Bessastaða en bifreiðin er árgerð 1942.

Starfsmenn embættis forseta veita leiðsögn um staðinn og verða ásamt sjálfboðaliðum gestum til aðstoðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert