Samkomulag náðst og dómsmál fellt niður

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkomulag hefur náðst milli VR, Lífeyrissjóða verzlunarmanna og fráfarandi stjórnarmenn lífeyrissjóðsins sem tilnefndir voru af VR. Þeir stjórnarmenn sem nú sitja í stjórninni í nafni VR láta af störfum. Í stað þeirra taka sæti í stjórninni nýir stjórnarmenn samkvæmt ákvörðun VR frá 14. ágúst. Dómsmál sem rekið hefur verið vegna tilnefningar í stjórnina verður fellt niður. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Deilan snerist um afturköllun fulltrúaráðs VR á umboði stjórnarmanna í lífeyrissjóðnum. 

„VR fellst á sjónarmið sem fram hafa komið af hálfu lífeyrissjóðsins og Fjármálaeftirlitsins um að óæskilegt sé að þeir  sem fara með vald til tilnefningar í stjórn sjóðsins hlutist til um ákvarðanir sjóðsstjórnar með því að skipta út stjórnarmönnum áður en kjörtímabili þeirra lýkur og vonar að slík inngrip heyri nú sögunni til.“ Þetta segir í tilkynningu. 

„VR lýsir yfir mikill ánægju með þessi málalok enda nauðsynlegt að ljúka deilu VR við sjóðinn og Fjármálaeftirlitið sem fyrst og koma ró á starfsemi sjóðsins. Allir aðilar hafa haft hagsmuni sjóðsins í fyrirrúmi og þessi málalok eru gerð í sátt allra aðila með framtíð sjóðsins að leiðarljósi,“ segir ennfremur í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert