Hlekktist á við lendingu

TF-KFF við komuna til landsins í júní 2014.
TF-KFF við komuna til landsins í júní 2014. Ljósmynd/Aðsend

Kennsluvél á vegum Keilis hlekktist á í lendingu á flugvellinum á Flúðum í morgun. Einn nemandi var um borð í vélinni en hann sakaði ekki. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keili, sem er í nánum samskiptum við flugmálayfirvöld vegna málsins.

Vélin er af gerðinni Diamond DA20-C1 Eclipse, ber einkennisstafina TF-KFF og er lítið skemmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert