Mikil gleði í miðborginni

Miðborgin iðar af lífi á menningarnótt.
Miðborgin iðar af lífi á menningarnótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við erum bara í hæstu hæðum. Þetta hefur gengið alveg ótrúlega. Ótrúlega mikið af fólki, sólin að skína á okkur og mikið af viðburðum út um allt. Þannig að við erum alveg ótrúlega sátt og glöð,“ segir Björg Jónsdóttir, verkefnisstjóri menningarnætur, í samtali við mbl.is.

Mikið hefur verið um að vera í miðborginni í dag og er óhætt að að segja að eitthvað hefur verið í boði fyrir hvern smekk. Menningarnótt er orðin ein stærsta árlega hátíð landsins.

„Laugavegurinn er stappaður, margt fólk úti á Granda, á Hlemm og uppi í Þingholtum, bara alstaðar. Raðir í alla matarvagna. Allir ótrúlega kátir og glaðir. Sólin gerir líklega alla svona glaða,“ segir Björg.

Spurð hvort allt skipulag hafi gengið samkvæmt áætlun svarar hún: „Það hefur ekkert klikkað hingað til og höldum bara áfram að vona það besta.“

Leikhópurinn Lotta nýtur ávallt mikilla vinsælda meðal barna, ekki síður …
Leikhópurinn Lotta nýtur ávallt mikilla vinsælda meðal barna, ekki síður meðal foreldra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Erill hjá lögreglunni

„Mér finnst vera – þó ég viti það ekki nákvæmlega – að það sé svipað og áður ef ekki fjölmennara í ár. Það er bara fólk út um allt. Það er dreifðara en áður hefur verið,“ svarar Björg spurð um fjölda gesta.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir mikinn fjölda vera saman kominn í miðbæ Reykjavíkur og að enn sé að fjölga.

„Það er erill hjá okkur en allt gengið talsvert vel,“ segir lögreglustjórinn. Spurð hvernig þetta leggst í mannskapinn svarar hún: „Það er bara mjög gott hljóð í þeim, enda mikil gleði í fólki og gott verður.“

Ekki er verra að fá eitthvað gott að snæða. Fjölbreytt …
Ekki er verra að fá eitthvað gott að snæða. Fjölbreytt úrval er í borginni í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Vísindasmiðjan í Hörpu gladdi margan.
Vísindasmiðjan í Hörpu gladdi margan. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sirkusveisla var í Lækjargötu á menningarnótt.
Sirkusveisla var í Lækjargötu á menningarnótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert