Hafa engar vísbendingar um lík Belgans

Leitað var með kafbát í síðustu viku.
Leitað var með kafbát í síðustu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engar vísbendingar hafa fundist um hvar lík belgíska ferðamannsins er að finna á botni Þingvallavatns sem talinn er hafa fallið í vatnið 10. ágúst. Kaf­bát­ur í eigu Tele­dyne Gavia var sett­ur út við Miðfell til að skanna botn­inn með són­ar og taka um 50 þúsund ljós­mynd­ir af dýpstu hlut­um vatns­ins á 22. ágúst. 

Þau gögn sem söfnuðust og búið er að fara í gegnum hafa ekki gefið neinar haldbærar vísbendingar, að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yf­ir­lög­regluþjóns lög­regl­unnar á Suður­landi. Ekki er þó búið að fara í gegnum öll gögn sem söfnuðust en unnið er að því.

Ekki er líklegt að kafbáturinn verði sendur aftur út til leitar í vatninu því hann skannaði yfir umfangsmikið svæði. Auk þess eru leitarskilyrði erfið í vatninu, sérstaklega þar sem ótal gjár og gjótur þekja botninn. Hlé hefur því verið gert á formlegri leit en viðbúið er að björgunarsveitarmenn munu fara yfir svæðið eitthvað næstu daga.

Kafbáturinn skannaði botninn og sendi um 50 þúsund ljósmyndir.
Kafbáturinn skannaði botninn og sendi um 50 þúsund ljósmyndir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í leit björgunarsveita og lögreglu að manninum var meðal annars stuðst við lýsingar Veigu Grétarsdóttur kajakræðara, sem mætti manninum á siglingu í Sigluf­irði yfir í Héðins­fjörð nokkrum dögum áður. Þetta staðfestir Sveinn Kristján.

Í viðtali við mbl.is greindi hún frá því að henni hafi ekkert litist á ferðalag mannsins því hann var vanbúinn til siglingar á sjó og vatni. Um leið og hún heyrði að hans væri leitað á Þingvallavatni hafði hún samband við lögregluna og lýsti búnaði hans. Hann var meðal annars ekki í björgunarvesti og íklæddur léttum göngufatnaði.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert