Hótel innréttað í Héðinshúsi

Áætlað er að taka nýja hótelið í notkun ákomandi vetri.
Áætlað er að taka nýja hótelið í notkun ákomandi vetri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Unnið er að því að breyta gamla Héðinshúsinu við Seljaveg í hótel. Verksmiðjuhúsin á bak við sem þekkt eru sem leikhús Loftkastalans og íþróttahús Mjölnis hafa verið rifin og er verið að flytja brakið í burtu.

Raunar mun húsið sem sést í lengst til hægri einnig víkja fyrir fjölbýlishúsi. Þarna á milli verður gerður hótelgarður sem tengir saman hótel og íbúðarhús.

Hótelkeðjan CenterHotels stendur fyrir framkvæmdunum á Seljavegi 2. Kristófer Oliversson forstjóri segir að framhúsið, hið eiginlega Héðinshús, verði látið halda sér og þar verði innréttað tæplega 150 herbergja hótel og í vélsmiðjusal Versins sem er áfastur verði veitingahús og önnur þjónusta við hótelgesti.

Áætlað er að taka hótelið í notkun á komandi vetri. Áform eru um stækkun með því að byggja hæð ofan á húsið og tvær hæðir á Verið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert