„Við hlustum á okkar félagsmenn“

Fimm flug­freyj­ur og -þjón­ar hjá Icelanda­ir skoða nú grund­völl fyr­ir …
Fimm flug­freyj­ur og -þjón­ar hjá Icelanda­ir skoða nú grund­völl fyr­ir mál­sókn gegn fé­lag­inu vegna veik­inda sem þau telja að megi rekja til slæmra loft­gæða um borð í vél­um fé­lags­ins. Ljósmynd/Eggert Jóhannesson

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir dómstóla þurfa að kveða upp úr með hvort veikindi fimm flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair megi rekja til lítilla loftgæða um borð í vélum félagsins. 

Fimmmenningarnir skoða grundvöll fyrir málsókn gegn Icelandair. Málið er á byrjunarstigi og Óðinn Elísson, lögmaður fólksins, segir Icelandair hafna því að veikindin megi rekja til lítilla loftgæða. „Við hlustum á okkar félagsmenn, að sjálfsögðu,“ segir Berglind í samtali við mbl.is. Hún getur ekki tjáð sig um mál einstakra félagsmanna og gat ekki svarað því hvort flugfreyjurnar og -þjónarnir sem íhuga málsókn hafi leitað til félagsins. 

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands. Ljósmynd/Vefsíða Flugfreyjufélagsins

Löggjöf um vinnuvernd ófullnægjandi

Berglind segir að helsta vandamálið þessu tengt sé að lög um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum taka ekki til flugfreyja. „Að okkar mati er löggjöfin á Íslandi ekki fullnægjandi,“ segir hún. 

„Þetta eru að sjálfsögðu erfiðar vinnuaðstæður. Eins og fram hefur komið erum við að vinna í miklum þrýstingi og í mikilli hæð. Það er oft kalt og þurrt loft og það er mjög mikil geislun,“ segir Berglind. 

Axel F. Sig­urðsson, trúnaðarlækn­ir hjá Icelanda­ir og lækn­ir á Hjartamiðstöðinni, segir í viðtali í Morgunblaðinu í dag að við ákveðnar kringumstæður geti skapast aðstæður þar sem agn­ir úr smurol­í­u úr hreyfl­um ber­ast í inn­önd­un­ar­loftið.

„Þetta eru erfiðar vinnuaðstæður sem ber að taka tillit til,“ segir Berglind, sem segir eitt baráttumála Flugfreyjufélagsins að félagsmenn þess verði jafn vel settir og starfsfólk á hinum almenna vinnumarkaði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert