Flýta mætti umferðinni um 15% með nýju ljósakerfi

Umferðin á Miklubraut á morgnana, umferðarteppa er að fyrstu umferðarljósunum …
Umferðin á Miklubraut á morgnana, umferðarteppa er að fyrstu umferðarljósunum en auð gata úr bænum. mbl.is/Árni Sæberg

Með því að taka upp nýtt ljósastýringarkerfi er hægt að flýta umferð einkabíla um 15% og draga úr tafatíma við ljós um 50%.

Þetta segir Ólafur Kr. Guðmundsson, umferðarsérfræðingur og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Borgarfulltrúar flokksins munu á morgun leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar um að innleiða nýja tækni í umferðarstýringu, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert