Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins ólíkt hinum

Svandís Svavarsdóttir segir það hafa komið glöggt fram á kynningarfundunum …
Svandís Svavarsdóttir segir það hafa komið glöggt fram á kynningarfundunum út um land að hvert heilbrigðisumdæmi hefur sína sérstöðu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kynningarfundur um heilbrigðisstefnu stjórnvalda til ársins 2030 hófst klukkan 17 á Hótel Natura og er hægt að fylgjast með honum hér í beinni útsendingu.

Það er Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sem boðar til fundarins sem er haldinn í samvinnu við Landspítalann og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Mun ráðherra þar kynna heilbrigðisstefnuna, en að auki munu þau Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, Alma D. Möller landlæknir, Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, kynna þar sína sýn.

Að fundinum loknum hefur heilbrigðisstefnan verið kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins.

Svandís segir það hafa komið glöggt fram á kynningarfundunum út um land að hvert heilbrigðisumdæmi hafi sína sérstöðu. Viðfangsefnin kunni mikið til að vera þau sömu, en ólíkar aðstæður kalli á fjölbreyttar og ólíkar lausnir varðandi allt skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæðum:

„Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins er um flest ólíkt hinum umdæmum. Það er langfjölmennast því hér býr þorri landsmanna, en á tiltölulega litlu svæði í samanburði við hin umdæmin. Hér er mest og fjölbreyttast framboð heilbrigðisþjónustu, hingað leitar fólk úr öðrum umdæmum eftir ýmiskonar sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og síðast en ekki síst er hér þjóðarsjúkrahúsið okkar, Landspítali sem er þungamiðja heilbrigðisþjónustunnar á landsvísu, um leið og hann er einnig héraðssjúkrahús höfuðborgarbúa“ er haft eftir  Svandísi í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert