Sjómaðurinn fluttur með sjúkraflugi

TF-MYA, sjúkraflugvél Mýflugs.
TF-MYA, sjúkraflugvél Mýflugs. Ljósmynd/Mýflug

Sjómaðurinn sem veiktist um borð í skipi út af Langanesi fyrr í dag er nú á leið til Reykjavíkur með sjúkraflugvél Mýflugs samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Þyrla Gæslunnar var send á vettvang til að koma manninum frá borði og var björgunarsveit á svæðinu einnig kölluð til aðstoðar. Vel gekk að koma manninum á fast land í Þórshöfn en þaðan var hann fluttur með flugi. Ekki fengust upplýsingar um veikindi mannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert