„Þarna hefur verið farið að öllum lögum“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra saman á blaðamannafundi í sumar. mbl.is/Hari

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra vísar því alfarið á bug að verklag hans við friðlýsingar í verndarflokki rammaáætlunar standist ekki lög, en Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að hann teldi svo vera.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur undir með Guðmundi og sagðist jafnframt vænta þess að forysta Sjálfstæðisflokksins myndi ræða það „á réttum vettvangi“ ef svo væri að það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins vegna friðlýsingaraðgerða ráðherrans.

Þetta sögðu þau Guðmundur Ingi og Katrín í samtali við mbl.is eftir ríkisstjórnarfund í ráðherrabústaðnum í dag. Guðmundur Ingi sagði túlkun Jóns Gunnarssonar „augljóslega“ byggða á misskilningi.

„Þarna hefur verið farið að öllum lögum og miðað við lög og lögskýringargögn, miðað við þá aðferðafræði sem verkefnisstjórn og faghópar rammaáætlunar miðuðu við. Þannig að það er ekkert sem á að koma á óvart,“ segir Guðmundur Ingi, sem segist hafa kynnt aðgerðirnar fyrir ríkisstjórninni.

„Ég kynnti þetta að sjálfsögðu fyrir ríkisstjórninni áður en til fyrstu friðlýsingarinnar kom, enda eðlilegt þegar um er að ræða fyrstu friðlýsingarnar í verndarflokki rammáætlunar. Þetta var náttúrlega bara rætt þar eins og er með mörg önnur mál, en þetta var niðurstaða mín sem ráðherra að með þessum hætti beri að gera þetta og það er algjörlega í samræmi við lög,“ segir Guðmundur Ingi.

Katrín segist ekki sammála þeirri skoðun Jóns Gunnarssonar að Guðmundur Ingi hafi farið gegn lögum með friðlýsingu á Jökulsá á Fjöllum, en með þeirri friðlýsingu var allt vatnasvið árinnar friðlýst gagnvart orkunýtingu.

Und­ir­rita á fleiri friðlýs­ing­ar svæða í vernd­ar­flokki ramm­a­áætl­un­ar á næstunni, til að mynda vatna­svið Hvítár og Jök­ul­falls á Kili, auk vatna­sviðs Tungna­ár sem á upp­tök sín í vest­ur­hluta Vatna­jök­uls.

„Lögin um rammaáætlun gera ráð fyrir því að það sé verið að horfa til vatnasviðs viðkomandi vatnsfalla, þannig að ég tel að umhverfis- og auðlindaráðherra hafi hreinlega fylgt þeim lögum sem voru í gildi og hann hefur farið mjög vel yfir það hvað varðar sitt ráðuneyti. Ég hef hins vegar ekki heyrt neitt um að stjórnarsamstarfið sé í hættu út af þessu og vænti þess að ef svo er þá muni forysta Sjálfstæðisflokksins ræða það á réttum vettvangi,“ segir forsætisráðherra.

Guðmundur Ingi segist einnig „alls ekki“ telja að stjórnarsamstarfið sé í hættu vegna þessa máls.

„Ef eitthvað er þá er ríkisstjórnin að fá aukinn liðstyrk núna með ungri og kraftmikilli konu, Áslaugu Örnu, sem ég bara hlakka til að fá að vinna með,“ segir Guðmundur Ingi, en Áslaug Arna verður sett í embætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum síðar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert