Skjálfti að stærð 4,2 í Bárðarbungu

Kort/Map.is

Tveir skjálftar mældust í Bárðarbungu með tíu sekúndna millibili kl. 02:03. Sá fyrri var 3,2 að stærð og sá seinni 4,2.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Þá segir að engir eftirskjálftar hafi mælst en þremur mínútum fyrr hafi orðið skjálfti á sama stað af stærð 2,3.

„Það sem af er þessu ári hafa ellefu skjálftar stærri en 3,0 mælst í Bárðarbungu, þar af fimm stærri en 4,0. Síðast mældist skjálfti stærri en 3,0 hinn 21. ágúst en þá varð skjálfti af stærð 3,5 og þar áður hinn 24. júní þegar þrír skjálftar stærri en 3,0 mældust, þar af tveir stærri en 4,0,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert