Tekinn með 70 kókaínpakkningar innvortis

Lögreglan rannsakar málið sem kom upp 1. september.
Lögreglan rannsakar málið sem kom upp 1. september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú fíkniefnamál sem upp kom þegar erlendur karlmaður reyndi að smygla tæpum 700 grömmum af kókaíni til landsins.

Að sögn lögreglu var maðurinn að koma frá Madrid á Spáni 1. september og viðurkenndi hann fyrir tollgæslu í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar að hann væri með fíkniefni innvortis.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn og færði á lögreglustöð. Þar skilaði hann af sér samtals 70 pakkningum af fíkniefninu, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu. 

Hann sætir nú gæsluvarðhaldi og rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert