Marglytturnar lagðar af stað yfir Ermarsund

Marglytturnar nú í morgun ásamt skipstjóra fiskibátsins Rowena, sem fylgir …
Marglytturnar nú í morgun ásamt skipstjóra fiskibátsins Rowena, sem fylgir Marglyttunum eftir alla leið til Frakklands og og sinnir jafnframt eftirliti með skiptingum sundkvennanna.

Marglytturnar, hópur kvenna sem ætlar að synda boðsund yfir Ermarsundið, lagði af stað frá höfninni í Dover núna klukkan sex í morgun eins og áætlað var.

Hóp­ur­inn hafði áður þurft að fresta sund­i sínu um helg­ina sök­um óhag­stæðra vinda og mik­ils öldu­gangs. Nú eru veður­skil­yrði hins veg­ar eins ákjós­an­leg og þau ger­ast en dagurinn í dag var jafn­framt síðasta tæki­færi þeirra til að hefja sundið.

„Spáin virðist ætla að standast, líka Frakklandsmegin, þannig að þær eru þá líklegar til að ná landi og stemningin í hópnum er alveg gríðarlega góð,“ sagði Soffía Sig­ur­geirs­dótt­ir, skipu­leggj­andi Mar­glytt­anna, í samtali við mbl.is nú í morgun. 

„Þær eru allar tilbúnar að fara í sjóinn,“ bætir hún við. Sig­ur­laug María Jóns­dótt­ir var fyrsta Mar­glytt­an sem stakk sér til sunds og gengur sundið vel hjá henni. „Það er ofboðslega fallegt veður og það er mikil ánægja hjá hópnum að hafa lagt af stað núna í morgun af því að núna ná þær að synda í björtu í allan dag.“

Veður­skil­yrði fyr­ir Erm­ar­sund hafa verið óvenjuslæm í sum­ar og marg­ir sund­menn þurft að bíða lengi og jafn­vel ekki kom­ist af stað. Mar­glytt­urn­ar hafa verið við æf­ing­ar í Do­ver síðan 2. sept­em­ber og eru með sundrétt frá 3. til 10. sept­em­ber.

Þrátt fyrir góð veðurskilyrði er vegalengdin sem synt er oft lengri sökum strauma, en áætlað er að sundið muni taka Marglytturnar sex um 16-18 tíma. Hver og ein Marglytta mun synda tvisvar til þrisvar í fyrirfram ákveðinni röð. Boðsundið þarf að fylgja settum reglum til þess að fást staðfest sem fullgilt sund af the English Channel Association.

Marglytturnar í sjósundsgallanum.
Marglytturnar í sjósundsgallanum. Ljósmynd/Aðsend

Mar­glytt­ur vilja sporna gegn plast­meng­un í hafi og eru að safna áheit­um fyrir Bláa her­inn. Mark­miðið með sund­ferðinni er að vekja at­hygli á áhrif­um plast­meng­un­ar á lífríki sjávar og mik­il­vægi þess að vernda auðlind­ir hafs­ins en ástand lífríkis í Erm­ar­sund­inu er mjög slæmt.

Hægt er að heita á Bláa her­inn í gegn­um AUR-appið í síma 788-9966, einnig er hægt að leggja inn fjár­hæð á reikn­ing 0537-14-650972, kt. 250766-5219. Hægt er að fylgj­ast með sundi Mar­glytt­anna á Face­book

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert