Samskipti frétta- og heimildarmanna verði skoðuð

Sj­ang­hæ-málið svokallaða vakti mikla at­hygli og var fyr­ir­ferðar­mikið í fjöl­miðlum …
Sj­ang­hæ-málið svokallaða vakti mikla at­hygli og var fyr­ir­ferðar­mikið í fjöl­miðlum lands­ins fyrstu dag­ana í sept­em­ber 2017. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Lögmaður Rositu YuF­an Zhang, eig­anda Sj­ang­hæ-veit­ingastaðanna, segir mikilvægt að varpa ljósi á samskipti fréttamanna og heimildarmanna sem fóru fram í tengslum við umfjöllun fréttastofu RÚV um veitingastaðinn Sjanghæ á Akureyri 2017.

RÚV var send stefna í febrúar og fór fyrirtaka málsins fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. „Það sem er mikilvægt er að leiða í ljós er hvernig þessi samskipti voru milli fréttamanna og heimildarmanna og hvert upplýsingarnar fóru og hvort það hafi þá ekki verið einhver mistúlkun í gangi milli aðila,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður Zhang, í samtali við mbl.is.  

Stefnan er óbreytt, en þar er farið er fram á sex millj­ón­ir í miska­bæt­ur, 1,2 millj­ón­ir í bæt­ur vegna birt­ing­ar og að ýmis um­mæli verði dæmd dauð og ómerk.

Hann seg­ir jafnframt að málið verði sótt af festu, en áður hafði form­leg kröfu­gerð verið lögð fram á hend­ur RÚV, sem hafnaði kröf­unni. Ákærðu í málinu eru Sunna Valgerðardóttir fréttamaður, Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri og Ríkisútvarpið. Lögmaður stefndu lagði ekki fram gögn við fyrirtöku málsins í dag. 

Sj­ang­hæ-málið vakti mikla at­hygli og var fyr­ir­ferðar­mikið í fjöl­miðlum lands­ins fyrstu dag­ana í sept­em­ber 2017. Í fyrstu frétt ruv.is  af mál­inu 30. ág­úst 2017 sagði meðal ann­ars: „Eig­andi veit­ingastaðar á Ak­ur­eyri er grunaður um vinnum­an­sal. Grun­ur leik­ur á að starfs­fólkið fái greidd­ar þrjá­tíu þúsund krón­ur á mánuði í laun og borði mat­araf­ganga af veit­ingastaðnum.“ Um­mæl­in eru meðal þeirra sem stefn­end­ur gera ósk um að verði dæmd dauð og ómerk.

Starfsmenn Eflingar-Iðju á vitnalista

Stétt­ar­fé­lag­inu Efl­ingu-Iðju bár­ust ábend­ing­ar um aðstæður starfs­fólks á veit­ingastaðnum og rætt var við full­trúa stétt­ar­fé­lags­ins í kvöld­frétt­um RÚV 30. ág­úst, fyr­ir utan veit­ingastaðinn. Stétt­ar­fé­lagið komst að þeirri niður­stöðu að þær upp­lýs­ing­ar um kjör starfs­manna sem fram kæmu í gögn­um sem aflað var við vinnustaðaeft­ir­litið stæðust al­menna kjara­samn­inga og launataxta sem giltu á veit­inga­hús­um. Grun­ur um man­sal reynd­ist því ekki á rök­um reist­um, sam­kvæmt at­hug­un stétt­ar­fé­lags­ins.

Í stefn­unni á hend­ur RÚV seg­ir að ljóst sé að starfs­menn Efl­ing­ar-Iðju hafi aldrei staðfest annað en að ábend­ing hafi komið fram að og grun­ur léki á að eitt­hvert mis­ferli væri í gangi. Aldrei hafi verið full­yrt af hálfu starfs­manna stétt­ar­fé­lags­ins að grun­ur væri um refsi­verða hátt­semi líkt og ít­rekað væri staðhæft í frétta­flutn­ingi stefndu. Ekki hafi því verið til­efni til að aðhaf­ast frek­ar í mál­inu enda hafi ábend­ing­in ekki átt við rök að styðjast.

Næsta skref er að sögn Sævars að leggja fram lista yfir þau vitni sem verða beðin að sækja málið, meðal annars starfsmenn Eflingar-Iðju. Í framhaldi af því verður ákveðið hvenær aðalmeðferð málsins fer fram. Sævar segir að vitnin verði þó nokkur. „Þetta verður aflaust einhver fjöldi, það er aðilar sem hafa komið að málinu frá upphafi,“ segir Sævar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert