Samstarf Íslands og Indlands hefur aukist

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Anumula Gitesh Sarma skrifstofustjóri …
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Anumula Gitesh Sarma skrifstofustjóri Evrópumála í utanríkisráðuneyti Indlands undirrituðu nýjan menningarsamning landanna í dag Ljósmynd/Stjórnarráðið

Í tilefni af opinberri heimsókn forseta Indlands, Ram Nath Kovind, og eiginkonu hans Savitu Kovind undirrituðu Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Anumula Gitesh Sarma skrifstofustjóri Evrópumála í utanríkisráðuneyti Indlands nýjan menningarsamning landanna í dag.

Í samningnum lýsa stjórnvöld landanna yfir vilja sínum til þess að efla samskipti landanna á menningarsviðinu, meðal annars með því að hvetja til skiptiheimsókna lista- og fræðimanna og styðja við uppsetningar sýninga, þýðingar og rekstur menningarhátíða. 

Fram kemur í tilkynningu vegna samningsins að samstarf Íslands og Indlands á sviði menningar-, mennta- og vísindamála hafi aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

„Það er dýrmætt fyrir okkur að eiga í samskiptum við ríki á borð við Indland sem býr að svo ríkulegri og fjölbreyttri menningu og sögu. Við horfum einnig til þess að efla samskipti ríkjanna á sviði menntamála – til dæmis með nemendaskiptum. Með tilkomu sendiráða ríkjanna, bæði hér heima og íslenska sendiráðsins í Nýju-Delí, hefur samstarfsflötum okkar fjölgað og sendiráðin hafa staðið að árangursríkum verkefnum. Með þessu samkomulagi landanna á sviði menningarmála munum við byggja á því góða starfi og efla samskiptin frekar,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert