Íslensk erfðagreining ætlar að raðgreina 225.000 erfðamengi fyrir breska lífsýnabankann UK Biobank í metnaðarfylllsta verkefni sem ráðist hefur verið í á sviði raðgreiningar í heiminum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu.
Þar segir að alls verði 500.000 erfðamengi raðgreind í þessu átaki en Wellcome Sanger, virtasta stofnun á sviði erfðavísinda í heiminum, ætlar að raðgreina önnur 225.000.
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir þetta mikið tækifæri fyrir erfðavísindin, þarna sé verið að beita aðferðafræði sem varð til á Íslandi til að leiða heimsátak í leit að erfðavísum sjúkdóma. Hann bendir á að lyfjaþróun sé mun árangursríkari ef hún byggist á erfðarannsóknum.
Það eru stofnanir á vegum breskra heilbrigðisyfirvalda, Wellcome Sanger-erfðavísindastofnunin og lyfjafyrirtækin Amgen, Johnson & Johnson, GlaxoSmithKline og AstraZeneca, sem fjármagna verkefnið í sameiningu.
Hér að neðan má sjá Kára ræða um verkefnið: