Skjálfti upp á 3 við Hveragerði

Tveir skjálftar, 3 að stærð eða stærri, hafa riðið yfir …
Tveir skjálftar, 3 að stærð eða stærri, hafa riðið yfir Suðvesturland í morgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð 2,4 kílómetra suðaustur af Hrómundartindi í nágrenni Hveragerðis nú á tíunda tímanum í morgun. Upptök skjálftans voru á 5,5 kílómetra dýpi, en nokkrir minni skjálftar hafa riðið yfir í kjölfarið. Stærstur þeirra var skjálfti upp á 1,4 stig.

Fyrr í morgun varð skjálfti upp á 3,4 stig um 3 kílómetra norðaustur af Grindavík. Fannst skjálftinn í byggð. Sérfræðingur á skjálftasviði Veðurstofunnar sagði þá við mbl.is að um væri að ræða þekkt sprungusvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert