„Þetta ástand getur ekki varað áfram“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að þær deilur sem hafa staðið yfir innan lögreglunnar séu alls ekki gott ástand. Hún segir að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, nýr dómsmálaráðherra, muni fara yfir þessi mál og eiga samtal við alla viðkomandi aðila á komandi dögum. 

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri sagði í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í gær gagnrýnina á embættið að und­an­förnu hluta af mark­vissri rógs­her­ferð. Mark­miðið væri að hrekja hann úr embætti. Rang­færsl­um væri vís­vit­andi dreift sem og róg­b­urði um hann.

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. mbl.is/​Hari

„Þetta er auðvitað ekki ástand sem getur varað svona í opinberri umræðu,“ sagði forsætisráðherra sem var gestur Heimis Más Péturssonar í þættinum Víglínan á Stöð 2.

Fram hefur komið að stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna telji ákvörðun dóms­málaráðuneyt­is um að fara fram á al­hliða stjórn­sýslu­út­tekt á embætti rík­is­lög­reglu­stjóra löngu tíma­bæra.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur m.a. sagt að hann telji að tíma­bært sé að hugað verði að framtíðar­skip­an lög­reglu og skyn­sam­legt væri að stjórn­sýslu­út­tekt rík­is­end­ur­skoðanda myndi bein­ast að heild­ar­end­ur­skoðun lög­reglu­mála í land­inu.

„Ríkisendurskoðun er að fara í stjórnsýsluúttekt og ég held að það sé skynsamlegt að bíða þess og sjá hvað kemur út úr þeirri úttekt,“ sagði Katrín ennfremur.

Hún tók fram að hún ætlaði ekki að fara inn í þessar opinberu deilur innan raða lögreglunnar.

„Það skiptir máli að við búum vel að lögreglunni en þetta ástand getur ekki varað áfram.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert